Hlutverk aðstoðarvallarstjóra Kiðjabergs (GKB) er að aðstoða við umsjón með umhirðu, viðhaldi á golfvelli og öðru umráðasvæði klúbbsins sem og daglegu eftirliti. Tryggir að svæði GKB sé alltaf eins og best verður á kosið og framfylgir faglegum vinnubrögðum starfsmanna.
Við leitum eftir einstakling sem hefur ástríðu metnað í starfi
Helstu verkefni:
- Aðstoðar við verkstjórn vegna viðhald
- Almenn innkaup
- Undirbýr Kiðjabergsvöll fyrir mótahald
- Aðstoðar við skipulagningu verka á hverjum degi
- Tryggir að snyrtimennska sé í hávegum höfð í verkum og frágangi þeirra.
Menntunar og hæfniskröfur:
- Golfvallarfræðimenntun eða góð reynsla af vinnu á golfvelli
- Vinnuvélaréttindi
- Þjónustulund og góð hæfni í mannlegum samskiptum
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 14. júní n.k.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsókn skal sendast á gkb@gkb.is
Öllum umsóknum verður svarað.